Heitir reitir eru staðir á jörðini, eins og t.d Ísland og Hawaii þar sem eldvirkni er meiri en annars staðar og standa þessir staðir hátt yfir umhverfið sitt. Undir heitum reitum eru öflugir möttulstrókar en það eru sívala eldsúlur sem eru með rætur sínar á allt að mörg hundruð km dýpi. Möttulstrókar myndast í iðrum jarðar. Þessi fyrirbæri eru öflugir, staðbundnir uppstreymisstaðir sem ná djúpt niður í möttulinn. Ef möttulstrókar um allan heim hættu að virka yrði engin eldvirkni í heiminum. Íslandsstrókurinn er um það bil 100 km í þvermál og nær að minnsta kosti á 450 km dýpi, en hann gæti náð á allt að 2900 km dýpi. Hann nær sennilega niður að mótum jarðmöttuls. Efnið í möttulsstóknum er 100-300°c heitara en möttulefnið utan hans á sama dýpi. Kenningin um möttulstróka kom fram árið 1970.