Jarðskorpan er ysta lag jarðar. Jarðskorpan getur verið allt frá 7 til 70 km þykk. Á hafsbotni er hún venjulega í kringum 7 til 11 km þykk en sú skorpa kallast úthafsskorpa. Á meginlandi er jarðskorpan 35 til 40 km þykk og þar heitir skorpan meginlandsskorpa. Jarðskorpan er þykkust undir fellingafjöllum út af því að þar hefur henni verið þrýst saman, þar sem tveir jarðskorpuflekar mætast. Jarðskorpan er búin til úr bergi.