Þegar talað er um iðustrauma er átt við hvaða eiginleikar vökvinn hefur eins og til dæmis hversu þykkur hann er og hversu hratt hann streymir. Þegar efni streymir hægt og án ólgu kallast sú hreyfing lagstreymi en aftur á móti ef hraðinn fer yfir ákveðin mörk og hvirflar myndast er um iðustreymi að ræða. Í jarðmöttlinum eiga iðustraumar einkum við efnishreyfingar möttulsefnisins. Varmi streymir frá möttlinum að yfirborðinu með iðustraumum og er þessi hreyfing efnisins í jarðmöttlinum orsök jarðskorpuhreyfinga og eldvirkni.